Byrjunarlið Fylkis og Gróttu - Eyþór Wöhler byrjar

Eyþór Wöhler byrjar í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Lið Gróttu er óbreytt frá síðasta leik

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Eyþór Wöhler byrjar í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

8 -liða úrslitum Mjólkurbikarsins lýkur með leik Fylkis og Gróttu á Tekk-vellinum í Árbæ og eru byrjunarliðin orðin klár.
Heimir Guðjónsson gerir tvær breytingar á Fylkisliðinu frá síðasta leik er þeir töpuðu gegn Þrótti í Lengjudeildinni. Máni Austmann Hilmarsson og Guðmundur Tyrfingsson fá sér sæti á bekknum og í þeirra stað koma þeir Eyþór Aron Wöhler og Theodór Ingi Óskarsson.

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu gerir enga breytingu á byrjunarliði þeirra í síðasta leik þegar þeir gerðu sér góða ferð til Njarðvíkur og sigruðu heimamenn 1-2 í hörku leik. Tvær vikur eru síðan sá leikur fór fram svo leikmenn Gróttu ættu að hafa náð ágætri endurheimt síðan þá en leik liðsins í síðustu umferð gegn Grindavík var frestað.

Lið Gróttu er óbreytt frá síðasta leik

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson