Fotbolti.net
13.06.26 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson

Besta deild kvenna: FH á toppinn eftir sjötta sigurinn í röð - Meistararnir töpuðu fyrir Stjörnunni

FH-ingar eru á toppnum

FH-ingar eru á toppnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
FH er komið á toppinn í Bestu deild kvenna eftir 5-2 sigur liðsins á Víkingi í 8. umferð deildarinnar í dag. Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks töpuðu óvænt fyrir Stjörnunni, 3-1, á Kópavogsvelli.
FH-ingar voru á blússandi siglingu fyrir leikinn gegn Víkingum og höfðu unnið fimm leiki í röð.

Þær lentu undir á 11. mínútu þegar Freyja Stefánsdóttir skoraði fyrir Víkinga. Emma Steinsen Jónsdóttir fékk boltann á hægri vængnum og kom honum inn á Freyju, sem skoraði, en Víkingar höfðu lítið ógnað fram að markinu.

FH var ekki lengi að snúa taflinu við. Nia Raisa Christopher jafnaði metin á 17. mínútu eftir sendingu frá Helenu Maree Errington og mínútu síðar kom Ingibjörg Magnúsdóttir FH í forystu. Hún fékk að valsa í gegnum vörn Víkinga og skora.

Víkingar urðu fyrir áfalli þegar Ísfold Marý Sigtryggsdóttir þurfti að fara meidd af velli með sjúkrabíl eftir að hafa dottið illa. Útlit var fyrir að hún hefði meiðst á hné.

FH bætti við í síðari hálfleik. Deja Jaylyn Sandoval skoraði með skalla á 57. mínútu og Thelma Lóa Hermannsdóttir gerði fjórða markið með laglegu skoti.

Jóhanna Elín Halldórsdóttir hélt vonum Víkinga á lífi með marki tuttugu mínútum fyrir leikslok, en Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir drap þær vonir með marki átta mínútum síðar.

Það var síðasta mark leiksins og FH er komið á toppinn með 19 stig, einu meira en Breiðablik sem tapaði óvænt fyrir Stjörnunni, 3-1, í Kópavogi.

Stjarnan komst yfir snemma leiks þegar Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir átti skot sem fór yfir Herdísi í markinu, í slána og inn fyrir línuna. Nokkrum mínútum síðar fóru Stjörnukonur illa með dauðafæri eftir misheppnaða sendingu Herdísar.

Blikar unnu sig vel inn í leikinn og fengu mörg færi til að koma til baka en nýttu þau ekki. Stjörnukonur refsuðu þeim í upphafi síðari hálfleiks þegar Ingibjörg gerði sitt annað mark með skoti úr teignum eftir undirbúning Úlfu Dísar Kreye Úlfarsdóttur.

Úlfa Dís setti þriðja markið stuttu síðar eftir frábæra skyndisókn. Fanney Lísa Jóhannesdóttir fékk boltann á hægri vængnum og var komin í erfiða stöðu en náði að koma boltanum á Úlfu, sem setti boltann framhjá markverðinum og í netið.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir minnkaði muninn hálftíma fyrir leikslok, en lengra komust Blikar ekki og töpuðu þar með öðrum deildarleik sínum á tímabilinu.

Blikar eru í öðru sæti með 18 stig en Stjarnan í þriðja sæti með 14 stig.

Grindavík/Njarðvík vann Fram, 2-0, í Úlfarsárdal. Fyrsta markið kom á 5. mínútu þegar Hannah McLaughlin skallaði hornspyrnu gestanna í átt að marki áður en Ellie Coffield hirti frákastið og skoraði.

Tinna Hrönn Einarsdóttir gerði mikilvægt annað mark leiksins á 64. mínútu. Maci Nicole Teater sendi Tinnu í gegn og hún setti boltann auðveldlega í fjærhornið.

Fram fékk tækifæri seint í leiknum til að komast betur inn í leikinn þegar Taylor Marie Hamlett ætlaði að lauma boltanum framhjá Genevieve Crenshaw í markinu, en sú síðarnefnda var fljót til og náði að stökkva á boltann. Lokatölur 2-0 í Úlfarsárdal.

Grindavík/Njarðvík er í 6. sæti deildarinnar með 11 stig en Fram í 9. sæti með 4 stig.

Að lokum gerðu Þróttur og ÍBV markalaust jafntefli á AVIS-vellinum í Laugardal.

Jafnræði var með liðunum og smá ryð eftir landsleikjapásu, en Guðný Geirsdóttir, markvörður Eyjaliðsins, náði í stigið fyrir ÍBV með þremur frábærum vörslum.

ÍBV er í 4. sæti með 14 stig en Þróttur í 5. sæti með 13 stig.

Breiðablik 1 - 3 Stjarnan
0-1 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('7 )
0-2 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('52 )
0-3 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('58 )
1-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('60 )
Lestu um leikinn

Fram 0 - 2 Grindavík/Njarðvík
0-1 Ellie Coffield ('5 )
0-2 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('64 )
Lestu um leikinn

Þróttur R. 0 - 0 ÍBV
Lestu um leikinn

Víkingur R. 2 - 5 FH
1-0 Freyja Stefánsdóttir ('11 )
1-1 Nia Raisa Christopher ('17 )
1-2 Ingibjörg Magnúsdóttir ('18 )
1-3 Deja Jaylyn Sandoval ('57 )
1-4 Thelma Lóa Hermannsdóttir ('67 )
2-4 Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('71 )
2-5 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('79 )
Lestu um leikinn
Stjarnan vann Íslandsmeistara Breiðabliks

Stjarnan vann Íslandsmeistara Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ellie Coffield skoraði í sigri á Fram

Ellie Coffield skoraði í sigri á Fram

Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH8+1219
2Breiðablik8+1118
3Stjarnan8+514
4ÍBV8014
5Þróttur R.8+413
6Grindavík/Njarðvík8-311
7Víkingur R.8-69
8Valur7-37
9Fram8-124
10Þór/KA7-82
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.