Fotbolti.net
13.06.26 - 13:26
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal talið líklegast til að landa Barcola

Bradley Barcola er eftirsóttur

Bradley Barcola er eftirsóttur

Canon

Mynd: EPA

Ágætis líkur eru á því að franski vængmaðurinn Bradley Barcola yfirgefi Paris Saint-Germain í sumarglugganum, en Arsenal er talið leiða baráttuna um hann.
Arsenal er eitt af nokkrum úrvalsdeildarfélögum sem eru sögð á eftir hinum 23 ára gamla Barcola, sem er þessa stundina með Frökkum á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Evrópumeistarar PSG vilja halda Barcola og hafa átt í viðræðum við hann um nýjan samning, en Sky hefur heimildir fyrir því að hann sé óánægður með að byrja ekki mikilvæga leiki. Nú síðast var hann á bekknum þegar PSG mætti Arsenal í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við PSG og er talinn einn besti ungi kantmaður heims. Ef hann nær ekki samkomulagi um nýjan samning mun PSG selja hann í sumar, en hann verður ekki ódýr.

Barcola skoraði 13 mörk og gaf 7 stoðsendingar með PSG í öllum keppnum á síðustu leiktíð, en Arsenal er talið leiða kapphlaupið um hann.

Áreiðanlegur notandi á X, Hand of Arsenal, útskýrir í langri færslu áhuga Arsenal sem hófst á síðasta ári. Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, vildi fá hann síðasta sumar en Barcola vildi sjálfur skoða stöðuna aftur ári síðar.

Berta hefur síðan þá verið í stöðugu sambandi við Moussa Sissoko, umboðsmann Barcola, og beðið um að fá upplýsingar ef PSG verður reiðubúið að selja.

Sissoko er einnig umboðsmaður Desire Doue og Ousmane Dembele hjá PSG og er samband hans við franska félagið gott. PSG er sagt í viðræðum um að fá Yan Diomande og Maghnes Akliouche í sumar, sem gæti haft áhrif á framtíð Barcola.

Ekki er hægt að afskrifa Liverpool, sem hefur gríðarlegan áhuga á vængmanninum, og þá hefur Barcelona einnig verið nefnt til sögunnar.

Það verður áhugavert að fylgjast með stöðu mála en Barcola yrði fengur fyrir hvaða stórlið sem er í Evrópu.
Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal, er í stöðugu sambandi við umboðsmann Barcola

Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal, er í stöðugu sambandi við umboðsmann Barcola

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.