Æfingabúnaði stolið frá enska landsliðinu

Thomas Tuchel er eflaust ekki sáttur enda gæti þetta truflað undirbúning liðsins fyrir fyrsta leikinn gegn Króatíu

Mynd: EPA

Enska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt um þjófnað úr æfingabúðum landsliðsins. BBC greinir frá.
Enska landsliðið snýr aftur í bækistöðvar sínar í Kansas City í dag eftir að hafa eytt síðustu dögum í Flórída.
Það hefur komið í ljós að brotist var inn í bifreiðar sem fluttu æfingabúnað landsliðsins að Swope Soccer-þorpinu í Kansas og voru boltar og fótboltaskór meðal þess sem var stolið.
Thomas Tuchel og hópurinn snúa aftur til Kansas seinna í dag og átti að koma æfingabúnaðinum á svæðið fyrir komu þeirra.
Lögreglumenn í Kansas City, sem hafa verið í sambandi við enska knattspyrnusambandið, mættu á vettvang í gærkvöldi til þess að rannsaka málið. Tveir hafa verið handteknir.
„Við erum að rannsaka mögulegan þjófnað á æfingabúnaði úr bifreið liðsins sem kom til Kansas án nokkurra hluta. Málið er til rannsóknar,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Kansas.
Athletic hefur nú heimildir fyrir því að enska landsliðið sé búið að endurheimta stolnu hlutina, fimm dögum fyrir fyrsta leikinn gegn Króatíu.
Enska landsliðið tekur sína fyrstu heilu æfingu á morgun.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!