Fotbolti.net
13.06.26 - 11:15
Brynjar Ingi Erluson

HM: Stærsti sigur Bandaríkjanna í 96 ár

Folarin Balogun skoraði tvö í frábærum sigri Bandaríkjanna

Folarin Balogun skoraði tvö í frábærum sigri Bandaríkjanna

Canon

Mynd: EPA

Bandaríkin 4 - 1 Paragvæ
1-0 Damian Bobadilla ('7, sjálfsmark )
2-0 Folarin Balogun ('31 )
3-0 Folarin Balogun ('45 )
3-1 Mauricio ('73 )
4-1 Giovanni Reyna ('90 )
Gestgjafar Bandaríkjanna byrjuðu með látum þegar þeir unnu 4-1 sigur á Paragvæ í fyrsta leik beggja þjóða í D-riðli heimsmeistaramótsins á SoFi-leikvanginum í Inglewood í Kaliforníu í nótt.

Bandaríkjamenn hófu leikinn á því að sparka boltanum í innkast, svipað og Luis Enrique hefur verið að vinna með hjá Paris Saint-Germain.

Þeir ætluðu sér stóra hluti og náðu markmiði sínu. Fyrsta markið kom á 7. mínútu leiksins. Christian Pulisic stakk sér á milli varnarmanna og kom boltanum á Weston McKennie, sem skaut í Damian Bobadilla, varnarmann Paragvæ, og af honum fór boltinn klaufalega í eigið net.

Folarin Balogun setti boltann í netið á 28. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu á Pulisic í aðdragandanum. Þremur mínútum síðar tókst Balogun hins vegar að skora fullkomlega löglegt mark.

Aftur var það Pulisic sem skaust upp vænginn og kom boltanum inn á Balogun, sem skoraði annað mark leiksins.

Hann var aftur á ferðinni undir lok fyrri hálfleiks þegar Malik Tillman stakk boltanum inn fyrir á Balogun, sem lék á tvo varnarmenn áður en hann skrúfaði boltann í netið.

Bandaríkin voru því með þriggja marka forystu í hálfleik, en það var í fyrsta sinn í sögunni sem þjóðin afrekar það á heimsmeistaramóti.

Paragvæ náði að minnka muninn á 73. mínútu. Julio Enciso átti gott samspil við Miguel Almiron áður en boltinn barst á varamanninn Mauricio, sem setti hann framhjá Matt Freese. Þetta var fyrsta landsliðsmark Mauricio fyrir Paragvæ.

Bandaríkin hótuðu fleiri mörkum. Tillman og Timothy Weah voru nálægt því að skora og markið kom fyrir rest þegar varamaðurinn Giovanni Reyna skoraði með utanfótarskoti eftir frábæra sókn heimamanna.

Þetta var í fyrsta sinn í sögunni sem Bandaríkin skora fjögur mörk í einum leik á HM og jafnframt stærsti sigur þjóðarinnar á mótinu frá því hún vann tvo leiki 3-0 á fyrsta heimsmeistaramótinu árið 1930.

Heimamenn byrja með stæl!
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Stærsti sigur Bandaríkjanna í 96 ár
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.