Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 10. mars 2022 12:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brentford óskar eftir svörum - Má félagið selja í sitt svæði á Stamford Bridge?
Brentford heimsækir Chelsea þann 2. apríl næstkomandi. Leikurinn er liður í 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Í ljósi máli er varða Chelsea og eignarhald Roman Abromovich er Brentford í óvissu hvort að félagið fái miða fyrir leikinn til þess að selja sínu stuðningsfólki. Brentford hafði áætlað að fá um 3000 miða til að selja sínum stuðningsmönnum.

Sjá einnig:
Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar

Brentford sendi frá sér yfirlýsingu og óskaði eftir svörum. Chelsea hefur verið meinað að selja miða á leiki liðsins á meðan eigum Abramovich eru frystar. Hann má ekki eiga möguleika á því að hagnast á félaginu.

„Varðandi miðana, hvað ef félagið kemst í undanúrslit FA-bikarsins? Verða þá 50 þúsund auð sæti þar sem stuðningsmenn Chelsea hefðu átt að vera? Það er fjöldi ósvaraðra spurningar. Enska úrvalsdeildin er enn að melta þessar fréttir," velti Mark Ogden, fréttamaður ESPN, fyrir sér í dag.

Ársmiðahafar Chelsea eru um 28 þúsund samkvæmt frétt Birmingham Mail árið 2020. Það skal tekið fram að ársmiðar eru þegar seldir miðar og nýta má þá til að sjá leikið liðsins. Heimavöllur félagsins, Stamford Bridge, tekur 41.837 áhorfendur.


Athugasemdir
banner