Nadine Dorries, menningarmálaráðherra Bretlands, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að eigur Roman Abramovich, eiganda Chelsea, voru frystar af ríkisstjórninni.
„Ég veit að þessar aðgerðir skapa óvissu fyrir Chelsea en ríkisstjórnin mun vinna með ensku úrvalsdeildinni og félögunum svo fótboltinn verði áfram spilaður en refsingarnar beinist að réttum aðilum," segir Dorries.
„Fótboltafélögin eru menningarverðmæti og grunnurinn í samfélagi okkar. Við erum staðráðin í að verja þau."
„Árásir Pútín á Úkraínu halda áfram og við verðum vitni að illsku á nýjum stigum á hverjum klukkutíma. Ríkisstjórnin hefur tilkynnt um frekari refsingar gagnvart einstaklingum sem tengjast stjórn Rússlands. Á þessum lista er Roman Abramovich, eigandi Chelsea."
„Það er forgangsmál hjá okkur að draga þá til ábyrgðar sem hafa gert Pútín stjórninni kleyft að gera þetta. Aðgerðir dagsins hafa augljóslega bein áhrif á Chelsea og stuðningsmenn. Við höfum lagt mikla vinnu í að tryggja að félagið og þjóðaríþróttin hljóti ekki óþarfa skaða af þessum aðgerðum."
Ríkisstjórnin opin fyrir því að leyfa sölu
Ríkisstjórnin gefur Chelsea sérstakt leyfi til að halda starfsemi áfram, spila leiki sína og borga starfsfólki. Aðeins ársmiðahafar mega mæta á heimaleiki.
Abramovich má ekki selja Chelsea en samkvæmt heimildum BBC eru stjórnvöld opin fyrir því að gefa leyfi á að félagið verði selt með þeim skilyrðum að ágóðinn renni ekki í hans vasa. Ríkisstjórnin telur að félaginu sé hugsanlega best borgið ef það verður selt.
Ljóst er að frysting eigna Abramovich mun hafa gríðarleg áhrif á Chelsea sem má ekki gera samninga við leikmenn.
Hversu margir ársmiðahafar eru hjá Chelsea?
Þær tölur eru ekki opinberar en samkvæmt umfjöllun í Birmingham Mail frá 2020 voru 28 þúsund ársmiðahafar hjá Chelsea. Heimavöllur félagsins, Stamford Bridge, tekur 41.837 áhorfendur.
Athugasemdir



