Mirsad Basic æfir þessa dagana með Keflavík og er möguleiki á því að hann gangi í raðir félagsins.
Basic er tvítugur sænskur markvörður sem var síðast á mála hjá Öster í Svíþjóð.
Hann spilaði á síðasta tímabili í sænsku C-deildinni á láni hjá Oskarshamn, hélt fjórum sinnum hreinu í átján leikjum og fékk á sig 28 mörk. Samkvæmt Transfermarkt er Basic 190 sm hár.

Keflavík hefur verið að skoða markmannsmálin sín þar sem Sindri Kristinn Ólafsson, sem varði mark liðsins í Lengjudeildinni í fyrra, vill flytja til Svíþjóðar.
Keflavík er með hinn efnilega Ásgeir Orra Magnússon sem er að snúa til baka eftir krossbandsslit og hefur leit staðið að manni til að veita honum samkeppni.
Athugasemdir