Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Auglýsing

Anton Ari Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Anton Ari Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Ég er bara svekktur. Frammistaðan hjá liðinu var frábær en ég hefði verið til í að gera betur þarna í eitt skiptið," segir Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, eftir 1-1 jafnteflið við Víking í opnunarleik Bestu deildarinnar.
Blikar leiddu í hálfleik en eftir mistök Antons jafnaði Gylfi Þór Sigurðsson fyrir Víking. Annars átti Anton mjög góðan leik.

„Það getur fylgt þessu að það má ekki mikið út af bregða þegar þú ert þarna á vellinum. Þó maður sé ekki að hugsa það beint núna þá reynir maður að læra af þessu og áfram veginn."
„Boltinn kom í óþægilegri hæð og mér fannst ég ekki getað hreinsað hann í fyrsta. Ég hitti boltann alls ekki og hann fór beint á Gylfa sem kláraði vel því ég var kominn vel út. Ætli þetta sé ekki gæinn sem maður vill minnst vilja gefa á ef maður ætlar að gera þetta á annað borð. Auðvitað vill maður bara sleppa þessu almennt."
Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.