Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
   fös 10. apríl 2026 12:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
'Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil.'
'Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég er minn helsti gagnrýnandi'
'Ég er minn helsti gagnrýnandi'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur'
'Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besti leikmaður Íslandsmótsins 2024.
Besti leikmaður Íslandsmótsins 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spáin kemur ekkert á óvart, Víkingur er Íslandsmeistari, eru með feikisterkt lið og hafa ef eitthvað er bara styrkt liðið. Hverju ég trúi svo raunverulega, það er annað. Ég er lítið að spá í þessari spá. Ég hlakka til að byrja á föstudaginn," segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, við Fótbolta.net.

Blikum er spáð 2. sæti hér á Fótbolti.net en Höskuldur hefur trú á því að liðið getur gert betur.

Blikar verða ekki í Evrópu í sumar og var Höskuldur spurður hvort það muni hjálpa Kópavogsliðinu.

„Það verður að koma í ljós. Maður er bara hundfúll að vera ekki í Evrópu. Allavega framan af, áður en eitthvað geðveikis-álag byrjar í (deildar)keppni og þess háttar, þá er Evrópa bara krydd og bensín - bara jákvæð. Ég vil ekki vera með yfirlýsingar, og trúi því ekki að hvíldin (hjálpi eitthvað framan af). Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur."

Höskuldur var besti leikmaður Íslandsmótsins 2024 en umræðan um hann á síðasta tímabili var sú að hann væri ekki að spila jafnvel og árið á undan. Er hann sammála því?

„Ég get alveg tekið undir það. Ég er minn helsti gagnrýnandi og það er kannski helsta ástæðan fyrir því að maður hefur spilað á háu getustigi í langan tíma og af miklum stöðugleika. Tölfræði og þannig var ekki ólík því og hafði verið, en oft er þetta 'eye-testið' og þetta huglæga; andinn í efninu. Það var kannski ekki alveg jafnmikið til staðar og ég er svo sem ekki með einhverja skýringu á því (af hverju). Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil. Mér líður vel og er peppaður fyrir hópnum og liðinu fyrir þetta tímabil."

Blikar mæta Víkingi á Víkingsvelli í opnunarleik Bestu deildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Hvernig verður að mæta þangað?

„Það verður vonandi gott veður, troðfull stúka og held þetta sé frábær leikur fyrir leikmenn, stuðningsmenn beggja liða og ekki síður deildina; vonandi alvöru 'PR stunt' til að sparka þessu í gang með svona stórum leik. Það er mikil tilhlökkun."

„Við náum í góð úrslit með því að hitta á okkar besta dag, allir sem einn. Það hefur verið það sem skilur að þegar kemur að úrslitunum í þessum leikjum. Þetta hafa verið mjög skemmtilegir leikir, mikil barátta, góður fótbolti og mikið af mörkum. Við ætlum að mæta hugrakkir, eins og við höfum oft mætt gegn Víkingi, með kassann úti og keyrum á þetta,"
segir Höskuldur.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner