Stundin er að renna upp. Nýtt tímabil í Bestu deild karla fer af stað í kvöld þegar Íslandsmeistarar Víkings taka á móti sínum helstu keppinautum í risaslag í opnunarleik ársins.
Leikur Víkings og Breiðabliks hefst klukkan 19:15 og er mikil eftirvænting. Í öllum spám fyrir mótið er Víkingi spáð efsta sætinu og liðið er talið talsvert sigurstranglegra fyrir leik kvöldsins.
Leikur Víkings og Breiðabliks hefst klukkan 19:15 og er mikil eftirvænting. Í öllum spám fyrir mótið er Víkingi spáð efsta sætinu og liðið er talið talsvert sigurstranglegra fyrir leik kvöldsins.
Tæplega 63% lesenda spá Víkingi sigri í kvöld en um 20% sigri Breiðabliks.

Ef rýnt er í veðbanka er stuðullinn 1,72 á Víking hjá Epicbet þegar þessi frétt er skrifuð en 4,31 á Breiðablik. Stuðullinn á jafntefli er 4,45.
Fróðlegt verður að sjá hvernig byrjunarliðin verða en þær sögur eru að ganga að Breiðablik muni mæta í Fossvoginn með fimm manna varnarlínu. Hvort það sé rétt á eftir að koma í ljós.
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
09.04.2026 14:41
Búast við því að uppselt verði á opnunarleikinn
10.04.2026 09:49
Líkleg byrjunarlið í opnunarleiknum - Gylfi með, þrír um tvær stöður og hver verður fremstur?
03.04.2026 18:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 1. sæti
02.04.2026 12:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 2. sæti


