Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 19:28
Brynjar Ingi Erluson
Kristófer Ingi skoraði fyrsta mark Bestu deildarinnar 2026
Kristófer Ingi skoraði fyrsta markið í Bestu deildinni árið 2026
Kristófer Ingi skoraði fyrsta markið í Bestu deildinni árið 2026
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristófer Ingi Kristinsson var rétt í þessu að skora fyrsta mark Bestu deildar karla árið 2026 er hann kom Blikum í 1-0 gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

Víkingar voru sigurstranglegri fyrir leikinn og voru að ógna með nokkrum fyrirgjöfum í byrjun leiks en það voru Blikar sem brutu ísinn á 4. mínútu.

Ágúst Orri Þorsteinsson fékk boltann hægra megin við teiginn, kom með hárfína sendingu á fjær á Kristófer sem setti boltann í autt markið.

Boltinn fór í gegnum alla vörnina hjá Víkingum og fyrsta markið komið í hús.

Þetta er annað árið í röð sem Bliki skorar fyrsta markið en Höskuldur Gunnlaugsson gerði fyrsta markið í 2-0 sigri á Aftureldingu á síðasta ári.

„FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!
Blikar vinna boltann á vallarhelmingi Víkings.

Kristófer Ingi ber boltann upp í átt að vítateig Víkings, leggur hann út til hægri á Ágúst Orra sem rennir boltanum inn á markteiginn og þar er Kristófer aleinn. Kristófer gat ekki annað en skorað!

0-1!“
sagði Sæbjörn Steinke sem textalýsir leiknum hér á Fótbolti.net.
Slapp
banner
banner