Fotbolti.net
10.04.26 - 11:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason tók við Blikum síðasta haust.

Ólafur Ingi Skúlason tók við Blikum síðasta haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Fótbolta.net eftir að dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í gær. Breiðablik mætir Þrótti Reykjavík í bikarnum. Í kvöld hins vegar heimsækja Blikar Víking í opnunarleik Bestu deildarinnar.

„Það er ótrúlega skemmtilegt að byrja á svona stórum leik. Veðurspáin lítur vel út og ég á von á því að það verði fullt hús og skemmtilegt."
Líkleg byrjunarlið í opnunarleiknum - Gylfi með, þrír um tvær stöður og hver verður fremstur?
TENGT EFNI

Líkleg byrjunarlið í opnunarleiknum - Gylfi með, þrír um tvær stöður og hver verður fremstur?

Þeir Ívar Örn Árnason og Ásgeir Helgi Orrason byrjuðu í hjarta varnarinnar gegn Kormáki/Hvöt um síðustu helgi. Viktor Örn Margeirsson, sem hefur verið byrjunarliðsmaður síðustu tímabil, kom inn á í seinni hálfleik en hvorki Ívar né Ásgeir fóru af velli.

„Það verður að koma í ljós (hvort það sé eitthvað sem koma skal), auðvitað erum við með þrjá öfluga miðverði. Við erum heppnir af því leytinu til, og erum í flestum stöðum með góða breidd."

Skynjar þú að leikur gegn Víkingi er öðruvísi en aðrir leikir fyrir Breiðablik?

„Já, að sjálfsögðu hefur þetta sögulega séð verið mikil barátta. Eðlilega er þetta leikur sem leikmenn sleikja út um að spila í. Það er skemmtilegt að byrja á topp-toppleik. Við erum staðráðnir í að mæta sterkir til leiks og setja svolítið tóninn fyrir sumarið."

„Við þurfum að gera mjög margt vel til að vinna, þeir eru Íslandsmeistarar og heilt yfir ótrúlegt 'solid' lið, vel rútínerað og vita nákvæmlega hvað þeir vilja gera. Við þurfum að eiga okkar allra, allra bestu frammistöðu til að fá eitthvað út úr þessum leik."


Blikum er spáð 2.-3. sæti af flestum. Er krafa að vinna Íslandsmeistaratitil?

„Krafa og ekki krafa. Krafan hlýtur að liggja þar að við eigum allavega að vera slást um það. Síðasta tímabil var vonbrigði, endum í fjórða sæti. Við viljum spyrna okkur aðeins upp og taka þátt í að berjast um þessa titla. Það er stefna félagsins, erum gríðalega stórt og sterkt félag," sagði Ólafur Ingi.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Viktor Örn byrjaði á bekknum í síðasta leik.

Viktor Örn byrjaði á bekknum í síðasta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.