Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
   fös 10. apríl 2026 22:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Skúla: Það er vinna framundan
'Ég sá fyrir mér að við fengjum vonandi fleiri svona stöður'
'Ég sá fyrir mér að við fengjum vonandi fleiri svona stöður'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Þetta er bara partur af fótbolta'
'Þetta er bara partur af fótbolta'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Ég treysti á Villa, að hann hafi tekið rétta ákvörðun þar'
'Ég treysti á Villa, að hann hafi tekið rétta ákvörðun þar'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Sterkt stig á erfiðum útivelli. Mér fannst við heilt yfir mjög flottir í dag," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir jafntefli gegn Víkingi í 1. umferð Bestu deildarinnar.

Ólafur Ingi stillti upp þremur miðvörðum í leiknum í dag því hann vildi mæta Víkingi í sínu sóknaruppleggi sem er að fara með fimm menn hátt upp á völlinn.

„Við vildum geta verið svolítið agressífir með vængmennina okkar og ýtt þeim meira miðsvæðis, sett Víkingana undir pressu og reynt að koma í veg fyrir að þeir gætu læst okkur niðri. Mér fannst það ganga fullkomlega upp í fyrri hálfleik. Varnarlega vorum við flottir í dag en það vantaði töluvert upp á sóknarlega."

Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu efst

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

Víkingar voru talsvert meira með boltann en Breiðablik leiddi lengi vel eftir að hafa skorað á fjórðu mínútu úr hraðri sókn.

„Ég hefði viljað sjá okkur nýta augnablikin þegar við unnum boltann; að annað hvort velja aðeins betur og fara í skyndisóknina eða halda betur í boltann og byggja upp. Við vorum svolítið fljótir í fyrri hálfleik að fara í löngu boltana. Það var mikil barátta og bæði lið að þreifa á leiknum."

„Ég er ánægður með markið, flott að fá mark frekar snemma. Ég sá fyrir mér að við fengjum vonandi fleiri svona stöður. Það voru stöður sem við hefðum getað nýtt okkur betur og gert betur. Það er vinna framundan."


Anton Ari Einarsson átti góðan leik í marki Breiðabliks fyrir utan risastór mistök í seinni hálfleik sem kostuðu mark.

„Þetta er bara partur af fótbolta, kemur fyrir. Við erum saman í þessu, það er ekkert við þessu að gera en að halda áfram."

Ólafur var spurður út í stórt atvik í lok leiks þegar Víkingur vildi víti. Voru Blikar heppnir?

„Ég veit það ekki. Þetta er oft grátt svæði með þessa blessuðu vítadóma með hendur og annað. Ég treysti á Villa, að hann hafi tekið rétta ákvörðun þar."
Slapp