Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   fös 10. apríl 2026 22:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins.
Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Já, við átum 100% að fá víti. Þetta er alltaf hendi, við áttum að fá víti þarna. Það er virkilega svekkjandi að dómararnir misstu af þessu. Ég held að hann hafi séð þetta, skil ekki af hverju hann dæmir þetta ekki. Það er vissulega svekkjandi og hefði gefið okkur vítaspyrnu undir lokin. Ég er virkilega ósáttur með það," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net eftir jafntefli við Breiðablik í 1. umferð Bestu deildarinnar.

Sölvi var spurður út í stórt atvik undir lok leiksins þar sem boltinn fór í hönd Ásgeirs Helga Orrasonar inn á vítateig Breiðabliks eftir að Gunnar Vatnhamar spyrnti í boltann. Víkingar vildu víti en fengu horn. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson gaf til kynna að þetta væri ekki víti og benti svo í átt að hornfána.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

„Ég veit ekki hvaða rök það eru, en þetta er stór ákvörðun. Villi er búinn að dæma það marga leiki að hann ætti allavega að þora að dæma þetta víti, en það virðist ekki vera," segir Sölvi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

„Á endanum er þetta jafntefli og ég er ósáttur með þá niðurstöðu. Við viljum vinna alla leiki hérna á heimavelli og yfir heildina þá fannst mér við eiga skilið að vinna þennan leik. Við gerðum ekki nóg, skoruðum ekki nóg af mörgum. Við fengum fullt af góðum færum í seinni til að skora meira en eitt mark, en nýttum það ekki."

„Við vorum dálítið slegnir út af laginu með þessu marki þeirra en hristum af okkur í seinni hálfleiknum. Það var bara eitt lið á vellinum í seinni og svekkjandi að hafa ekki náð að nýta það."

„Þolinmæðin og hvernig við létum boltann ganga, það skilaði sér í lokin og Blikar urðu þreyttir; það byrjaði að slitna á milli keðjanna hjá þeim og við byrjuðum að finna svæði. Það er miklu erfiðara að elta bolta heldur en að vera með bolta. Það skilaði sér í lokin, við vorum að kaffæra þeim í lokin og þeir voru eiginlega í köðlunum að verja markið og gerðu það alveg vel."


Sölvi segir að það hafi komið sér á óvart að Breiðablik hefði stillt upp þremur miðvörðum. „Ég hef aldrei spilað á móti Breiðabliki í þriggja manna. Það kemur alveg smá á óvart, en við vorum undirbúnir fyrir það."

Sem varnarmaður áttu ekki að halda
Þjálfarinn var svekktur með fyrirliðann sinn, Oliver Ekroth, í markinu sem Blikar skoruðu. „Í fyrsta lagi missir Helgi boltann á miðjunni og þeir geta hlaupið á okkur. Við erum ágætlega staðsettir inn á teignum en það er einhver misskilningur eða hik á fyrirliðanum okkar. Sem varnarmaður áttu ekki að halda að einhver taki boltann. Það er bara burt með boltann. Það virðist vera að hann hafi haldið að Ingvar hafi ætlað að taka boltann. Það er klaufaskapurinn í þessu. Við þurfum að gera betur, Oliver þarf að læra af þessu. Í fótbolta gerast mistök, við viljum fækka þeim og þurfum að læra af þessu."

Í lok viðtals hrósaði Sölvi stuðningsmönnum Víkings mikið fyrir stuðninginn úr stúkunni og endaði viðtalið á léttu nótunum eins og sjá má í spilaranum efst.
Slapp