Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 11:20
Brynjar Ingi Erluson
„Þessir leikmenn eru ekki sáttir og eiga ekki að vera það“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, segist ekki hafa áhyggjur af hópnum eftir að Kennie Chopart fékk högg í magann í magnaða 3-2 sigrinum á Val í Bestu deildinni á föstudag. Hann segir marga hungraða leikmenn í hópnum og nokkra utan hóps sem eru ekki sáttir.

Chopart er að eiga frábæra byrjun á tímabilinu með Fram. Hann skoraði fjórða deildarmark sitt í Bestu deildinni í sigrinum á Val og verið gríðarlega mikilvægur.

Eins og áður kom fram fékk hann högg í leiknum gegn Val, en hann segist vera með góðan hóp.

„Kennie er gríðarlega mikilvægur fyrir hópinn og liðið. Hann er fyrirliði og er búinn að skora þrjú eða fjögur mörk í sex leikjum og auðvitað er hann mikilvægur, en ég er með þrjá stráka upp í stúku, einn reyndar meiddan en tvo aðra sem eru ekki í hóp.“

„Róbert Hauksson er ekki í hóp, Arnar Daníel er ekki í hóp og Sigfús Guðmunds er ekki í hóp. Það er ekki gaman fyrir okkur þjálfarana að þurfa skilja stráka eftir sem telja sig eiga rétt á að vera í hóp og það er ekki gaman alltaf að spila sama byrjunarliðinu þrjá eða fjóra leiki í röð, en meðan þú vinnur þá er erfitt að skamma þjálfarann og gagnrýna. Þessir menn eru ekki sáttir og eiga ekki að vera það, en þeir eru hluti af þessum hóp og þeir hafa lagt gríðarlega vinnu á sig líka.

„Ef Kennie eða Kyle meiðast eða einhver meiðist þá tökum við á því. Við erum með góða leikmenn á bekknum og góða leikmenn í hópnum. Ég hef engar áhyggjur,“
sagði Rúnar.

Framarar hafa viku til að undirbúa sig fyrir næsta leik sem er gegn toppliði KR á Meistaravöllum. Fram er í 3. sæti með 13 stig eftir sex leiki, fimm stigum frá toppnum.
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Slapp
banner
banner