10.06.05 - 15:35
MIkael Forssell til Birmingham (Staðfest)

Birmingham hafa gengið frá kaupunum á finnanum Mikael Forssell frá Chelsea. Kaupverðið er 3 milljónir punda en þessi 24 ára gamli framherji var á leiðinni til Everton sem hættu við á síðustu stundu.
Forssell var í láni hjá Birmingham á tímabilinu 2003/2004 og skoraði þar 19 mörk og sló alveg í gegn. Á síðasta tímabili meiddist hann aftur á móti illa á hné og spilaði nánast ekkert en er óðum að ná sér og stóðst læknisskoðunina hjá Birmingham.
Everton voru ekki til í að taka þessa áhættu og Birmingham létu ekki segja sér hlutina tvisvar og hrifsuðu Forssell. Steve Bruce stjóri liðsins vonast nú til þess að kaupa miðjumann og er Lee Bowyer víst ofarlega á óskalista hans.
Forssell kom til Chelsea frá HJK Helsinki fyrir 7 árum þegar Ruud Gullit stýrði Lundúnarliðinu. Hann spilaði lítið í aðalliðinu og var að láni hjá Crystal Palace og Borussia Monchengladbach auk Birmingham. Schalke höfðu einnig áhuga á að kaupa hann í sumar en Birmingham hrepptu gnóssið og spennandi verður að sjá Forssell í framlínunni með Emile Heskey á næsta tímabili.