Fotbolti.net
10.06.21 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Roberts skrifar undir nýjan samning hjá Leeds (Staðfest)

Roberts skrifar undir nýjan samning hjá Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Í gær var tilkynnt að Tyler Roberts, leikmaður Leeds, hefði skrifað undir nýjan þriggja ára samning og er því samningsbundinn út tímabilið 2023/2024.
Tyler er uppalinn hjá WBA en gekk í raðir Leeds árið 2018. Hann er sóknarmaður sem getur spila sem fremsti maður, á vængnum og fyrir aftan framherja.

Roberts varð 22 ára gamall í janúar og hefur hann skorað átta mörk í 78 deildarleikjum frá komu sinni til Leeds. Þar af eitt mark í 27 deildarleikjum í vetur.

Roberts er í velska landsliðshópnum sem tekur þátt í EM í sumar. Roberts hafði verið orðaður við Newcastle og Cardiff í vetur.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.