Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 12:54
Kári Snorrason
Létt yfir Svíum - Potter með kúrekahatt á æfingu
Mynd: SF
Graham Potter, landsliðsþjálfari Svíþjóðar, var undir bandarískum áhrifum á æfingu liðsins í gær en þar mátti sjá hann með vígalegan kúrekahatt.

Liðið æfir um þessar mundir á leikvangi Cowboy Dallas í Texas og undirbýr sig fyrir komandi átök á HM.

Mikill hiti er í Dallas og hefur hann mest farið upp í 35 gráður á síðustu dögum.

Svíþjóð er í riðli með Túnis, Holland og Japan og hefur mótið á leik gegn Túnis aðfaranótt mánudags.


Slapp
banner
banner