Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd ætlar ekki í stríð við Man City
Mynd: EPA
Man City ætlar sér að næla í Elliot Anderson frá Nottingham Forest í sumar.

The Athletic greindi frá því í kvöld að félagið hafi lagt fram risa tilboð í leikmanninn sem hljóðar upp á 106 milljónir punda og gæti hækkað upp í 120 milljónir punda.

Nottingham Forest er hins vegar ekki tilbúið að selja hann nema það komi mettilboð í hann. Liverpool borgaði metfé fyrir Alexander Isak frá Newcastle síðasta sumar en félagið borgaði 125 milljónir punda fyrir hann.

Man Utd hefur verið orðað við Anderson en The Athletic greinir frá því að félagið er ekki tilbúið að fara í tilboðsstríð við nágranna sína. Félagið ætlar frekar að einbeita sér að Mateus Fernandes, leikmanni West Ham og Alex Scott, leikmanni Bournemouth.
Slapp
banner
banner