Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. júní 2026 08:57
Elvar Geir Magnússon
Messi spjallaði lengi við Daníel Tristan eftir leikinn
Það fór vel á með Daníel og Messi.
Það fór vel á með Daníel og Messi.
Mynd: Skjáskot
Lionel Messi var meðal markaskorara í 3-0 sigri Argentínu gegn Íslandi í vináttulandsleik í Bandaríkjunum í nótt.

Messi, einn besti leikmaður sögunnar og mögulega sá besti, sýndi gæði sín eftir að hafa komið inn af bekknum en sviðsljósið mun svo sannarlega beinast að honum á HM sem er handan við hornið.

Eftir leikinn spjallaði Messi lengi við Daníel Tristan Guðjohnsen sem einnig kom inn af bekknum í leiknum. Messi spilaði með pabba Daníels, Eiði Smára Guðjohnsen, hjá Barcelona á sínum tíma og var það kveikjan af samskiptum þeirra.

Messi var ber að ofan enda hafði hann skipt á treyju við Jón Dag Þorsteinsson beint eftir lokaflautið.

Hér að neðan má sjá Daníel spjalla við Messi, Jón Dag fá treyjuna og svo einnig markið sem argentínska goðsögnin skoraði en það kom af vítapunktinum.

Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland




Slapp
banner
banner