Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. júlí 2018 18:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðlaugur Baldursson hættur með Keflavík (Staðfest)
Guðlaugur og Eysteinn Húni.
Guðlaugur og Eysteinn Húni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík var að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Guðlaugur Baldursson sé hættur sem þjálfari meistaraflokks karla.

Guðlaugur tók við Keflavík í október 2016 og stýrði liðinu upp úr Inkasso-deildinni í fyrra.

Það hefur ekki alveg gengið sem skildi í Pepsi-deildinni og er Keflavík aðeins með þrjú stig eftir 11 leiki.

Eysteinn Húni Hauksson, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Guðlaugs mun stýra Keflavík tímabundið. Næsti leikur Keflavíkur er á föstudaginn gegn Víkingi.

Yfirlýsingin frá Keflavík:
Guðlaugur Baldursson og stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur hafa komist að samkomulagi um að verða við ósk Guðlaugs um að láta af störfum sem yfirþjálfari knattspyrnudeildar. Hann hefur nú þegar tilkynnt samstarfsmönnum um ákvörðun sína, en hún er tekin með hagsmuni liðsins að leiðarljósi.

Guðlaugur hefur óskað eftir að láta af störfum strax og hefur stjórn félagsins falið Eysteini Haukssyni aðstoðarþjálfara að stýra liðinu tímabundið þar til að ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið. Honum til aðstoðar verður Ómar Jóhannsson.

Stjórn knattspyrnudeildar virðir ákvörðun Guðlaugs og mun strax vinda sér að því að taka ákvörðun um framhald þjálfunnar liðsins. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það enn sem komið er.

Guðlaugur hefur gengt mikilvægu hlutverki í þjálfun liðsins frá haustinu 2016 og hefur meðal annars átt stóran þátt í að koma liðinu aftur í efstu deild. Honum þökkuð góð störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner