Fotbolti.net
10.09.20 - 06:00
Victor Pálsson

„Upamecano gæti farið á næsta ári

„Upamecano gæti farið á næsta ári
Canon

Mynd: Getty Images

Dayot Upemecano, varnarmaður RB Leipzig, gæti kvatt félagið næsta sumar samkvæmt Julian Nagelsmann, stjóra liðsins.
Upamecano er 21 árs gamall franskur landsliðsmaður en hann er sterklega orðaður við stærstu félög Evrópu.

Leikmaðurinn krotaði þó undr nýjan samnng við félagið í júlí og er ekki á förum fyrr en mögulega á næsta ári.

„Upamecano verður með okkur á tímabilinu. Ég er viss um það," sagði Nagelsmann við ESPN.

„Varðandi framtíðina þá er ég ekki viss því hann er mjög hæfileikaríkur. Það eru mörg félög sem vilja kaupa."

„Það gæti vel gerst að hann fari á næsta tímabili en hann verður hér áfram á þessu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.