Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. október 2018 14:45
Ingólfur Páll Ingólfsson
Leó Örn framlengir við Víking Ólafsvík
Leó Örn spilaði vel hjá Skallagrími í sumar.
Leó Örn spilaði vel hjá Skallagrími í sumar.
Mynd: Heimasíða: Víkingur Ólafsvík
Leó Örn Þrastarson skrifaði um síðustu helgi undir nýjan samning við Víking Ólafsvík sem er til næstu tveggja ára.

Leó Örn sem er uppalinn hjá Víking Ólafsvík var í sumar lánaður til Skallagríms og spilaði með þeim í 18 leikjum í 4. deildinni þar sem hann skoraði 2 mörk.

Skallagrímur endaði sem kunnugt er í 2. sæti deildarinnar og fór upp um deild. Leó Örn er kominn aftur til Ólafsvíkur og mun nú spila fyrir liðið næsta sumar. Leó Örn sem er tvítugur spilaði tvo leiki með Víking Ólafsvík í vor áður en hann var lánaður til Skallagríms.
Athugasemdir
banner
banner
banner