19.09.26 - 23:06
Mate Dalmay
Adam Páls: Eiður skuldar mér
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson var í byrjunarliði KA og skoraði þriðja og síðasta mark leiksins í 3-0 sigri í nágrannaslagnum gegn Þór fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum
Adam Ægir var að vonum kátur að leikslokum enda komst KA upp úr fallsæti með sigrinum. Liðið er tveimur stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu en framundan er þriggja vikna frí útaf landsleikjahléi.
„Við áttum þetta skilið. Fyrri leikurinn sem við spiluðum á móti þeim var eiginlega nákvæmlega eins nema að núna skoruðum við mörkin okkar. Þetta er kærkomið og við eigum þetta skilið. Ég klúðraði dauðafæri í byrjun leiks og skuldaði að skora þarna í lokin," sagði Adam mjög hress.
„Við þurfum að vinna sigra og nú erum við komnir upp úr fallsæti þannig þetta er bara geðveikt, og líka á laugardegi þannig þetta getur ekki verið betra. Allir vinir mínir eru hérna og fjölskyldan mín er hérna, ætli ég fái mér ekki einn eða tvo ölsara í kvöld þannig þetta verður bara geðveikt.
„Eiður sagði fyrir leik að hann myndi borga fyrir mig fríið ef ég myndi skora nær þannig ég held að hann skuldi mér."

Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð