Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. október 2020 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale klár í slaginn - Hefur hrifið þjálfara á æfingum
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale mun líklega spila sinn fyrsta leik fyrir Tottenham í sjö ár þegar Spurs mætir West Ham um næstu helgi.

Bale yfirgaf Tottenham og fór til Real Madrid 2013. Hann er kominn aftur til Tottenham á láni eftir að hafa verið í kuldanum hjá Zinedine Zidane.

Hinn 31 árs gamli Bale kom aftur til Tottenham með hnémeiðsli en er núna búinn að jafna sig að fullu.

Samkvæmt heimildum football.london þá eru þjálfarar Tottenham stórhrifnir af því same Bale hefur verið að gæra á æfingum. Hann hefur verið að standa sig vel og það hefur haft góð áhrif á yngri leikmenn félagsins. Einn þeirra er Jack Clarke, ungur kantmaður sem hefur hrifið Jose Mourinho að undanförnu.

Tottenham hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni og er með sex stig eftir þrjá leiki. Liðið rústaði Manchester United um síðustu helgi, 6-1.
Athugasemdir
banner
banner
banner