Fotbolti.net
10.10.26 - 14:24
Brynjar Ingi Erluson

Arteta: Það var hrein unun

Mikel Arteta

Mikel Arteta

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ánægður með viðbrögð sinna manna í 2-1 sigrinum á Leeds í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds
TENGT EFNI

England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds

Arteta vildi sjá leikmenn Arsenal svara fyrir 3-0 tapið gegn Brighton fyrir landsleikjahléið. Þeir lentu undir gegn Leeds í dag en sýndu karakter og sneru leiknum sér í vil með tveimur mörkum.

„Fyrir leikinn ræddum við tvennt. Fyrst áskorunina sem beið okkar. Leeds hafði ekki tapað í deildinni og við vissum að þetta yrði erfitt. Svo þurftum við að finna okkar leik aftur og vera við sjálfir, sama hvað gerðist í leiknum.“

„Við vorum ósáttir við frammistöðuna gegn Brighton og fengum tækifæri til að svara fyrir hana í dag. Við brugðumst við eins og við ætluðum okkur,“
sagði Arteta.

Hann hrósaði Leeds en var jafnframt ánægður með framlag varamanna sinna.

„Þeir eru ótrúlega vel skipulagðir og með líkamlega sterka leikmenn sem gefa allt í þetta.“

„Þegar þú spilar á heimavelli klukkan 11:30 og lendir 1-0 undir þarftu að ná þér aftur á strik. Við þurftum meðal annars að ná upp orkunni og viðbrögðin voru frábær. Maður fann strax breytinguna hjá stuðningsmönnunum. Markaskorararnir komu inn á og skiptu sköpum.“

„Með þessum þremur leikmönnum fengum við mikla leiðtogahæfileika inn á völlinn. Þeir eru hættulegir fyrir framan markið, geta unnið návígi, spilað fram á við og ógnað gegn hárri pressu.“

„Tímasetningarnar, samspilið og útfærslan voru hrein unun,“
sagði Arteta.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.