10.10.26 - 19:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ég hefði átt að skora þrennu"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham gerði jafntefli gegn Man Utd í kvöld. Dominic Solanke jafnaði metin í uppbótatíma.
„Við réðum ríkjum í fyrri hálfleik. Við vorum ekki nógu klínískir, saga tímabilsins. Við hefðum getað verið með nokkurra marka forystu. Við tökum stiginu," sagði Solanke.
Solanke fékk nokkur úrvalsfæri og hann var svekktur með nýtinguna sína.
„Ég hefði átt að skora þrennu. Ég var ekki nógu klínískur, ég veit það. Ég held áfram, ég var að koma mér í réttar stöður til að skora."
Hann bar fyrirliðabandið í fyrsta sinn hjá Tottenham í kvöld.
„Þetta var í fyrsta sinn sem ég var fyrirliði fyrir frábært félag. Og ég skoraði, það er eitthvað sem ég mun muna það sem eftir er ferilsins."