Fotbolti.net
10.10.26 - 17:01
Kári Snorrason

Gummi Kristjáns búinn að spila sinn síðasta leik - „Bað um að fá að sleppa að spila“

Búinn að spila sinn síðasta fótboltaleik.

Búinn að spila sinn síðasta fótboltaleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson greindi frá því í vikunni að hann hyggðist leggja skóna á hilluna eftir tímabil. Hann var ekki í leikmannahóp Stjörnunnar í dag sem tapaði 0-3 fyrir KA.

Fótbolti.net spurði Brynjar Kristmundsson, einn af bráðabirgðaþjálfurum Stjörnunnar, út í fjarveru Guðmundar í viðtali eftir leik.
Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna
TENGT EFNI

Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna

„Gummi er með okkur og æfir með liðinu alla daga. Það var tekin ákvörðun í samráði við hann um að hann myndi ekki spila. Það kemur frá honum að fyrra bragði og við virðum það. Hann er með okkur á öllum æfingum og hér á bekknum, það er góð nærvera frá honum. Hann bað um það að fá að sleppa að spila.“

Hefur hann spilað sinn síðasta fótboltaleik?
„Já, ég held það,“ svaraði Brynjar.
„Kemur frá honum að fyrra bragði og við virðum það.“

„Kemur frá honum að fyrra bragði og við virðum það.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ekki boðlegt ef þú spilar fyrir Stjörnuna“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.