Fotbolti.net
10.10.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Reynsluboltarnir feta í fótspor Ronaldo og Giggs

Jordan Henderson kom að þremur mörkum gegn Bournemouth

Jordan Henderson kom að þremur mörkum gegn Bournemouth

Canon

Mynd: EPA

Reynsluboltarnir Jordan Henderson og Pascal Gross sýndu í dag að þeir eiga enn nóg inni og náðu báðir merkum áfanga í ensku úrvalsdeildinni.
England: Henderson tvö glæsimörk í stórsigri Chelsea - Endurkoma hjá nýliðunum
TENGT EFNI

England: Henderson tvö glæsimörk í stórsigri Chelsea - Endurkoma hjá nýliðunum

Henderson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 5-1 stórsigri Chelsea á Bournemouth og varð þar með elsti leikmaðurinn til að koma að þremur mörkum í sama úrvalsdeildarleik síðan Cristiano Ronaldo gerði það fyrir Manchester United árið 2022.

Henderson er 36 ára og 115 daga gamall en Ronaldo var 37 ára þegar hann skoraði þrennu gegn Norwich.

Henderson varð einnig aðeins annar leikmaðurinn til að bæði skora og leggja upp á fyrstu þremur mínútum úrvalsdeildarleiks. Emile Heskey var sá fyrsti en hann afrekaði það gegn Derby County árið 1998.

Gross lét líka til sín taka þegar hann lagði upp mark í 2-0 sigri Brighton á Sunderland. Hann hefur nú gefið stoðsendingu í þremur deildarleikjum í röð og er sá elsti til þess síðan Ryan Giggs gerði það með Manchester United árið 2012.

Gross er 35 ára og 117 daga gamall en Giggs var 38 ára.


Pascal Gross hefur lagt upp í síðustu þremur leikjum

Pascal Gross hefur lagt upp í síðustu þremur leikjum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.