Fotbolti.net
10.10.26 - 15:31
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Skoraði fljótasta mark sögunnar eftir skelfileg mistök Neuer

Manuel Neuer gerði skelfileg mistök í fyrra markinu

Manuel Neuer gerði skelfileg mistök í fyrra markinu

Canon

Mynd: EPA

Fljótasta mark í sögu þýsku deildarinnar leit dagsins ljós þegar Augsburg og Bayern München gerðu 2-2 jafntefli í dag.
Robin Fellhauer þurfti aðeins átta sekúndur til að koma Augsburg yfir gegn Bayern og skoraði þar með fljótasta mark í sögu þýsku deildarinnar og eitt það fljótasta í topp fimm deildunum.

Manuel Neuer fékk boltann eftir upphafsspyrnuna en dundaði sér of lengi með hann. Fellhauer hirti boltann af honum, hljóp að markinu og skoraði.

Metið í fimm stærstu deildunum er enn í eigu Rafael Leao sem skoraði fyrir AC Milan eftir tæpar sjö sekúndur tímabilið 2020-21. Fellhauer hefði raunar getað verið að minnsta kosti tveimur sekúndum fljótari en kaus að fara öruggu leiðina og hlaupa nær markinu áður en hann skoraði og missti því af meti Leao.

Skelfileg byrjun hjá Neuer en Bayern jafnaði í síðari hálfleik með marki Ismael Saibari. Níu mínútum síðar kom Rodrigo Ribeiro Augsburg aftur yfir með marki af stuttu færi.

Bæjarar sóttu hart eftir það. Luis Diaz skoraði glæsilegt mark með hælnum sem var dæmt af en skömmu síðar jafnaði Nathaniel Brown metin.

Lokatölur urðu 2-2 og Bayern er enn taplaust eftir fimm umferðir. Liðið er í öðru sæti með ellefu stig en Augsburg í því fimmta með átta.

Cole Campbell spilaði síðustu tuttugu mínúturnar með Elversberg í 1-0 tapi fyrir Union Berlín. Lúkas Petersson var ekki í hópnum hjá Hoffenheim sem tapaði 3-2 fyrir Hamburger SV eftir mikla dramatík.

Bayer Leverkusen vann þá 4-3 sigur á Mainz og er komið með tíu stig.

Union Berlin 1 - 0 Elversberg
1-0 Livan Burcu ('81 )

Mainz 3 - 4 Bayer
0-1 Robert Andrich ('5 )
0-2 Patrik Schick ('9 )
1-2 Anthony Caci ('33 )
2-2 Anthony Caci ('42 )
2-3 Jarell Quansah ('55 )
2-4 Moussa Diaby ('65 )
3-4 Benedict Hollerbach ('90 )

Augsburg 2 - 2 Bayern
1-0 Robin Fellhauer ('1 )
1-1 Ismael Saibari ('55 )
2-1 Rodrigo Ribeiro ('64 )
2-2 Nathaniel Brown ('80 )

Paderborn 0 - 2 Stuttgart
0-1 Jeff Chabot ('25 )
0-2 Chris Fuhrich ('83 )

Hoffenheim 2 - 3 Hamburger
0-1 Yussuf Poulsen ('12 )
0-2 Sebastiaan Bornauw ('45 , sjálfsmark)
1-2 Bambase Conte ('53 )
1-3 Terem Moffi ('83 )
Rautt spjald: Bernardo, Hoffenheim ('65)
Robin Fellhauer skoraði fljótasta mark í sögu deildarinnar

Robin Fellhauer skoraði fljótasta mark í sögu deildarinnar

Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.