Fotbolti.net
11.01.14 - 06:30
Hafliði Breiðfjörð

Jankó: Gerum allt til að komast í úrvalsdeild

Auglýsing
Milan Stefán Jankovic. Hann segir að hann þurfi nokkra leikmenn til að koma Grindavík upp og er ákveðinn í að þeir endi sem Pepsi-deildarlið næsta haust.

Milan Stefán Jankovic. Hann segir að hann þurfi nokkra leikmenn til að koma Grindavík upp og er ákveðinn í að þeir endi sem Pepsi-deildarlið næsta haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Þetta voru alltof stór úrslit,\" sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindavíkur eftir 7-1 tap gegn FH í Fótbolta.net mótinu í gær.
,,Við vorum að tala saman um það eftir leik að við vorum að taka alltof mikla sénsa. Við ætluðum að spila boltanum frá aftasta manni en þeir refsuðu bara okkar mönnum og gerðu 3-4 mörk eftir okkar mistök. Þeir voru mjög grimmir og pressuðu okkur mjög vel. FH voru að spila mjög vel í dag og eru mjög sterkir, en hjá okkur vantar marga leikmenn. Það skiptir samt engu máli, mér finnst vanta meiri baráttu og ákveðni, við vorum alltof kærulausir.\"

,,Þetta var fyrsti leikur og við verðum að sýna meiri vilja og baráttu og vera ekki með þetta kæruleysi,\" sagði Janko sem er ákveðinn í að Grindavík muni fara upp í Pepsi-deildina í haust.

,,Vonandi munum við fá aftur til baka Juraj og Jóa Helga sem voru í fyrra og svo einn framherja og einn miðjumann, og kannski hafsent líka. Þetta eru fjórir til fimm leikmenn sem okkur vantar til að komast aftur í úrvalsdeildina. Okkar takmark er að fara í úrvalsdeildina og við ætlum að gera allt til að komast þangað. Liðið sem var í fyrra vantar bara tvo sterka leikmenn til að komast upp.\"

Nánar er rætt við Janko í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.