Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. janúar 2021 22:06
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: West Ham vann nauman sigur á Stockport
Craig Dawson var hetja West Ham gegn Stockport
Craig Dawson var hetja West Ham gegn Stockport
Mynd: Getty Images
Stockport 0 - 1 West Ham
0-1 Craig Dawson ('83 )

West Ham United er komið áfram í fjórðu umferð enska bikarsins eftir 1-0 sigur á Stockport County í kvöld en ljóst er að West Ham mætir Doncaster Rovers í fjórðu umferðinni.

Gestirnir áttu besta færi fyrri hálfleiksins en Said Benrahma átti þá skot sem fór af stönginni og aftur fyrir endamörk.

Stockport varðist vel og tókst að halda út fyrri hálfleikinn. Declan Rice vildi fá vítaspyrnu á 58. mínútu er boltinn fór í höndina á varnarmanni Stockport en Mike Dean, dómari leiksins, dæmdi ekkert.

West Ham tókst þó að koma boltanum í netið á 83. mínútu er Craig Dawson skallaði fyrirgjöf Jarrod Bowen í netið.

Lokatölur 1-0 fyrir West Ham sem er komið áfram og mætir Doncaster Rovers í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner