Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   sun 11. febrúar 2024 15:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Fiorentina fór illa með Frosinone
Jonathan Ikone komst á blað hjá Fiorentina
Jonathan Ikone komst á blað hjá Fiorentina
Mynd: Getty Images

Fiorentina 5 - 1 Frosinone
1-0 Andrea Belotti ('16 )
2-0 Jonathan Ikone ('19 )
3-0 Lucas Martinez ('43 )
4-0 Nicolas Gonzalez ('53 )
4-1 Luca Mazzitelli ('66 )
5-1 Antonin Barak ('85 )


Fiorentina er í harðri baráttu um Evrópusæti en liðið er í 7. sæti með 37 stig en Atalanta er í 4. sæti með 39 stig.

Fiorentina byrjaði leikinn af krafti gegn Frosinone í dag en liðið var með 3-0 forystu í hálfleik.

Nicolas Gonzalez bætti fjórða markinu við áður en Frosinone náði að svara en það var Luca Mazzitelli sem klóraði í bakkann fyrir Frosinone.

Antonin Barak innsiglaði síðan sigur Fiorentina með marki þegar skammt var til loka leiksins.


Athugasemdir
banner
banner