Björgvin Brimi Andrésson hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Víkings til uppeldisfélagsins Gróttu.
Björgvin Brimi, sem er fæddur 2008, hjálpaði Gróttu að komast upp úr 2. deild í fyrra og var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar.
Hann lék með KR í 3. og 4. flokki en sneri aftur á Nesið á síðasta ári og var lykilmaður í liði Gróttu sem endaði í 2. sæti 2. deildar.
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, sagði í hlaðvarpsþættinum ChessAfterDark í síðustu viku að Víkingur væri með möguleikann á því að kalla Björgvin til baka í sumarglugganum.

Björgvin er glaður með að koma aftur á Vivaldi: „Ég er mjög glaður með að vera kominn aftur í Gróttuna og er virkilega spenntur að spila með strákunum í Lengjudeildinni í sumar," er haft eftir kantmanninum í tilkynningu Gróttu.
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu: „Það er gleðiefni að fá Björgvin til okkar á nýjan leik. Hann er frábær strákur og ég hlakka mikið til að sjá hann á vellinum í Gróttubúningnum.”
Grótta
Komnir
Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni
Andri Freyr Jónasson alfarið frá Aftureldingu (var á láni)
Farnir
Pétur Theódór Árnason hættur
Marvin Darri Steinarsson í Vestra
Marciano Aziz til Þýskalands
Þórður Sveinn Einarsson í Val (var á láni)
Samningslausir
Kristófer Melsted
Björgvin Stefánsson
Valdimar Daði Sævarsson
Benedikt Aron Albertsson
Athugasemdir