Fotbolti.net
11.02.26 - 08:17
Elvar Geir Magnússon

De Zerbi farinn frá Marseille (Staðfest)

De Zerbi er reglulega orðaður við Manchester United.

De Zerbi er reglulega orðaður við Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi hefur látið af störfum sem stjóri franska liðsins Marseille en í tilkynningu segir að um sameiginlega ákvörðun hans og félagsins sé að ræða.

Marseille fékk 5-0 skell gegn Paris St-Germain í hans síðasta leik en liðið féll úr keppni í Meistaradeildinni nýlega eftir 3-0 tap gegn Club Brugge.
De Zerbi þungt hugsi um framtíðina
TENGT EFNI

De Zerbi þungt hugsi um framtíðina

De Zerbi tók við Marseille sumarið 2024, eftir að hafa yfirgefið Brighton þar sem hann var tæplega tvö ár í starfi.

Hann stýrði Marseille í annað sætið í frönsku deildinni á síðasta tímabili og yfirgefur liðið þar sem það situr í fjórða sæti, tólf stigum frá toppliði PSG.

De Zerbi hefur reglulega verið orðaður við stjórastarfið hjá Manchester United og sú umræða verður væntanlega enn háværari nú þegar hann er án starfs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.