Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. maí 2021 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kwame kominn með leikheimild - Gæti spilað gegn Blikum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kwame Quee var á leið til Íslands á sunnudag og á morgun fær hann leikheimild með Víkingum fyrir sumarið. Kwame skrifaði í vetur undir samning út tímabilið.

Hann missir að öllum líkindum af leiknum gegn Stjörnunni á fimmtudag en gæti spilað gegn Breiðabliki á sunnudag.

Kwame er 24 ára landsliðsmaður Sierra Leone og kom fyrst til Íslands fyrir fjórum árum og lék með Víkingum sumrin 2017 og 2018.

Fyrir tímabilið 2019 gekk hann í raðir Breiðabliks en lék með Víkingum á láni seinni hluta þess tímabils sem og seinni hluta síðasta tímabils.
Athugasemdir
banner
banner