Fotbolti.net
11.05.26 - 18:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Annað rauða spjaldið fyrir að rífa í hár

Valskonur eru einum færri á Kópavogsvelli.

Valskonur eru einum færri á Kópavogsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Núna er ekki liðið mikið af fótboltasumrinu en nú þegar eru komin tvö rauð spjöld í Bestu deild kvenna fyrir hártog.

Það fyrra kom í fyrstu umferð í leik Vals og Grindavík/Njarðvík þar sem Maci Teater, leikmaður síðarnefnda liðsins, fékk að líta rauða spjaldið. Núna var það Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, leikmaður Vals, sem fékk rautt fyrir að toga í hár Barbáru Sólar Gísladóttur, leikmanns Breiðabliks, á Kópavogsvelli.
Myndir: Fékk rautt fyrir að rífa í hár Kimberley - „Fáránlegt brot"
TENGT EFNI

Myndir: Fékk rautt fyrir að rífa í hár Kimberley - „Fáránlegt brot"

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Valur
Hrafnhildur Salka var rekin af velli á 18. mínútu, aðeins mínútu eftir að Valur komst óvænt í 1-2.

„Þetta var glórulaust og algjör óþarfi," skrifaði Alexander Tonini í beinni textalýsingu frá leiknum.

„Barbara Sól með boltann í í vinstri bakvarðarstöðunni og gabbar Hrafnhildi upp úr skónum og Hrafnhildur ákveður að stöðva hana með því að rífa í hárið hennar. Gunnar sá þetta vel og var ekki lengi að rífa upp rauða spjaldið."

Þess má geta að leikur Breiðabliks og Vals í kvöld er leikur í fjórðu umferð Bestu deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.