Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 13:30
Elvar Geir Magnússon
Minnisvarði um Jota reistur fyrir utan Anfield
Mynd: Liverpool
Liverpool hefur afhjúpað hvernig minnisvarði um Diogo Jota og Andre Silva bróður hans mun líta út en hann mun vera settur upp fyrir utan Anfield, heimavöll Liverpool.

Jota og Silva, sem lék fyrir portúgalska B-deildarliðið Pebafiel, létust í hörmulegu bílslysi þann 3. júlí á Spáni.

Minnisvarðinn verður með hjartalöguðu mynstri sem er tilvísun í fagn Jota og með númerunum 20 og 30 sem voru treyjunúmer þeirra bræðra. Þá er textinn úr Jota söngnum sem er sunginn af stuðningsmönnum Liverpool á 20. mínútu í öllum leikjum.

Jota var portúgalskur landsliðsmaður sem kom til Liverpool frá Úlfunum 2020 og skoraði 65 mörk í 182 leikjum fyrir félagið. Hann vann ensku úrvalsdeildina, FA-bikarinn og tvo deildabikara á Merseyside.
Mynd: Porto

Slapp
banner