Fotbolti.net
11.06.05 - 09:37
Hafliði Breiðfjörð

Nonda til Roma (Staðfest)

Nonda til Roma (Staðfest)
Canon
Ítalska félagið Roma hefur gengið frá samningum við Kongó manninn Shabani Nonda. Framherjinn hefur verið undanfarin þrjú ár hjá Monaco í Frakklandi en samningur hans þar var runninn út og leikmaðurinn hafði farið að leita sér að nýju félagi eftir að hafa misst byrjunarliðssætið á síðustu leiktíð.
Nonda hafði verið orðaður við félagaskipti til Juventus og Rangers en það voru svo Roma sem unnu kapphlaupið um undirskrift hans. Nonda sjálfur var hæstánægður með félagaskiptin:

,,Ég er ánægður með að ganga til liðs við Roma, frábært félag, mikilvægt lið sem er byggt upp með landsliðsmönnum," sagði Nonda við vefsíðu Roma.

,,Sérstaklega vil ég þakka Sensi fjölskyldunni og leiðtogum Roma sem hafa trú á hæfileikum mínum og hafa gefið mér meiri hvatningu til að koma til Roma."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.