11.06.05 - 06:36
Hafliði Breiðfjörð
Ahmad Elrich til Fulham (Staðfest)

Fulham tilkynntu í gær að þeir hafi samið við ástralska landslisðmanninn Ahmad Elrich frá Busan Icons í Suður Kóreru. Félagið gerði þriggja ára samning við leikmanninn aðeins degi eftir að hann hafði komið inná sem varamaður í landsleik Ástralíu og Nýja Sjálands á heimavelli Fulham, Craven Cottage en Ástralir unnu 1-0 í vináttuleiknum.
Ekkert var gefið upp um kaupverð á leikmanninum. Chris Coleman stjóri Fulham sagði:
,,Hann æfði með okkur í viku í maí og sýndi frábæra hollustu, ákafa og hæfileika. Hann er mjög hraður og jafvnel fljótasti leikmaðurinn í hópnum okkar."
Elrich hafði áður spilað með Parramatta Power í heimalandi sínu, Ástralíu, og var í Ólympíuliði Ástrala í fyrra. Hann sagði: ,,Það hefur alltaf verið minn draumur að spila fyrir landið mitt og að spila í ensku úrvalsdeildinni, svo ég er hæstánægður."