11.06.05 - 07:47
Valerien Ismael til Bayern Munchen (staðfest)

Valerien Ismael

Valerien Ismael

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa stðafest kaup sín á Frakkanum Valerien Ismael frá Werder Bremen. Þessi sterki varnarmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Bayern en Torsten Frings fór til Bremen í skiptum fyrir Ismael.
Frings er í landsliði Þjóðverja sem keppir í Álfukeppninni sem hefst á næstu dögum en hann mun skrifa undir svipaðan samning hjá Bremen og Ismael gerði hjá Bayern. Frings spilaði með Bremen á árunum 1997-2002 áður en hann fór til Borussia Dortmund.
Þaðan lá leiðin til Bayern fyrir 9 milljón Evrur en hann náði ekki að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu og tímabilið olli nokkrum vonbrigðum fyrir hann. Engar peningaupphæðir hafa heyrst í sambandi við félagaskipti leikmannanna.
Ismael kom til Bremen árið 2003 og hjálpaði liðinu að landa Þýskalandsmeistaratitlinum auk Þýska bikarsins á sínu fyrsta tímabili.