Atli Viðar: Okkur líður vel á toppnum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Atli Viðar Björnsson, framherji FH í Pepsi-deildinni, var ánægður með stigin þrjú sem liðið tók á Fjölnisvellinum í kvöld.
Atli var gríðarlega öflugur í liði FH í kvöld en liðið er taplaust eftir fyrstu sjö umferðirnar og situr á toppnum.
,,Við erum virkilega ánægðir að fara úr Grafarvoginum með þrjú stig í kvöld. Við vissum að þetta yrði hörkuleikur og þeir hafa sýnt það að þeir eru með gott lið og sýndu það enn og aftur í kvöld,\" sagði Atli Viðar við Fótbolta.net í kvöld.
,,Það gat alveg eins gerst eins og ekki en við fengum líka færi til að klára leikinn. Þetta var bara stál í stál og hörkuleikur tveggja liða.\"
,,Ég held að skipulagið hafi verið að byggja ofan á það sem við höfum verið að gera. Vörnin hefur verið að halda sem er gott og við ætluðum að ná inn mörkum og það kom eitt, það dugði til að fá þrjá stig.\"
,,Okkur líður vel á toppnum, það er bara svoleiðis. Okkur líður vel með hvern annan inni a vellinum svo við erum í ágætis málum en við gerum okkur grein fyrir því að við getum bætt heilmargt og við ætlum okkur að gera það á næstunni,\" sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.