Óli Kristjáns: Emil skiptir okkur engu máli eins og staðan er í dag
Auglýsing

Óli Kristjáns í klefanum hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Emil Hallfreðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Kristjáns í klefanum hjá FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH hefur leik í Pepsi Max-deildinni með því að mæta HK í Kórnum klukkan 18 á sunnudaginn. Bjartsýnin hefur aukist í Hafnarfirðinum og umræðan í kringum liðið hefur orðið jákvæðari.
„Við höfum tekið það á kassann sem við höfum þurft að taka á kassann. Það hefur alltaf verið unnið gott starf innanhúss hjá FH," segir Ólafur Kristjánsson.
FH tapaði fyrir HK í Kórnum í fyrra.

„Það hefur verið brösótt gengi í Kórnum og það er bara tilefni til að gera betur. Við förum bara fullir sjálfstrausts í Kórinn. Ég ætla ekki að tala einu orði um það að við séum á leið inn í Kórinn, geri það núna og svo er það búið."
Emil Hallfreðsson hefur verið mikið í umræðunni en stuðningsmenn FH virðast þurfa að bíða eitthvað lengur eftir að sjá hann snúa til baka. Emil er væntanlega á leið í úrslitakeppni á Ítalíu.
„Emil Hallfreðsson er ekki leikmaður FH og skiptir okkur engu máli eins og staðan er í dag. Ég er búinn að svara ótrúlega mörgum spurningum um Emil en það eru ríflega 20 leikmenn sem eru á mála hjá okkur og spila fyrir FH í sumar. Ef Emil verður laus mála á Ítalíu þá er það möguleiki en ekkert er í hendi," segir Ólafur.
En er FH að skoða í kringum sig eftir liðsstyrk?
„Það er gamla klisjan að leikmannahópur er aldrei endanlegur. Við erum alltaf með augun opin en fókusinn er á leiknum á sunnudaginn." - Horfðu á viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
1. umferð Pepsi Max
laugardagur 13. júní
20:00 Valur-KR (Origo völlurinn)
sunnudagur 14. júní
15:45 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
18:00 HK-FH (Kórinn)
20:15 Breiðablik-Grótta (Kópavogsvöllur)
mánudagur 15. júní
18:00 Víkingur R.-Fjölnir (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)