Fotbolti.net
08.06.20 - 14:16
Elvar Geir Magnússon

Emil á leið í umspil með Padova - FH þarf að bíða

Emil Hallfreðsson.

Emil Hallfreðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útlit er fyrir að landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson muni ekki ganga í raðir FH fyrir keppni í Pepsi Max-deildinni.

FH-ingar vonuðust eftir því að fá Emil en hann hefur verið að æfa með liðinu og spilað æfingaleiki.

Óvissa var með framhaldið hjá ítalska C-deildarliðinu Padova en Emil, sem verður 36 ára síðar í þessum mánuði, er samningsbundinn félaginu út tímabilið.
Ítalska knattspyrnusambandið ákvað í dag að Monza, Vicenza og Reggina fari upp í B-deildina en umspil muni skera úr um hvaða lið fær eitt laust sæti í deildinni.

Ítalska C-deildin skiptist í þrjá riðla og þrjú fyrrnefnd lið voru efst í sínum riðli.

Emil og félagar í Padova eru því á leið í úrslitakeppni sem fer af stað þann 1. júlí

Í tilkynningu ítalska sambandsins er sagt að ef félög vilja ekki taka þátt í útsláttarkeppninni sé þeim frjálst að afþakka sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.