Amin Cosic hefur farið frábærlega af stað með KR í Bestu deildinni þetta sumarið. Greint hefur verið frá því að lið erlendis frá hafi lagt fram tilboð í þennan tvítuga kantmann.
Arnór Ingvi Traustason var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net í síðustu viku og fór þar fögrum orðum um liðsfélaga sinn.
Hann segir fyrst hafa séð Amin á æfingu með Njarðvík þar sem Arnór æfði á meðan hann var í fríi á Íslandi sem leikmaður Norrköping en Arnór er uppalinn Njarðvíkingur.

„Ég æfði með Amin hjá Njarðvík, þegar ég tók eina æfingu með Njarðvík. Þá sá ég hann í fyrsta skiptið og sendi beint á hann á Instagram eftir æfinguna; 'Gaman að sjá þig, þú varst geggjaður og átt framtíðina fyrir þér.'
Svo var ekkert meira um það en ég svo vissi að hann væri á leiðinni í KR og ég kem í KR hálfu ári seinna,“ segir Arnór og heldur áfram.
„Síðan er gaman að sjá hvað hann hefur vaxið. Hann er mikill svampur, ef maður segir eitthvað þá hlustar hann. Sérstaklega frá okkur eldri held ég. Það er samt líka egó í þessum dreng sem er gott en hann er líka hógvær þegar þess þarf. Hann er búinn að bæta sig þvílíkt mikið,“ sagði Arnór jafnframt.