Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 21:11
Brynjar Ingi Erluson
HM: Opnunarleikurinn fer í sögubækurnar
Mexíkó vann í svakalegum leik
Mexíkó vann í svakalegum leik
Mynd: EPA
Yaya Sithole sá rauða spjaldið
Yaya Sithole sá rauða spjaldið
Mynd: EPA
Mexíkó 2 - 0 Suður-Afríka
1-0 Julian Quinones ('9 )
2-0 Raul Jimenez ('67 )
Rautt spjald: , ,Yaya Sithole, Suður-Afríka ('49)Themba Zwane, Suður-Afríka ('84)Cesar Montes, Mexíkó ('90)

Mexíkó vann frábæran 2-0 sigur á Suður-Afríku í opnunarleik HM á Mexico City-leikvanginum í Mexíkóborg í kvöld. Leikurinn fer í sögubækurnar.

Gestgjafarnir í Mexíkó voru með öll völd stærstan hluta leiksins og komust í forystu á 9. mínútu. Yaya Sithole tapaði boltanum, sem datt síðan fyrir Julian Quinones sem skoraði með föstu skoti undir markvörð Suður-Afríku.

Stuttu áður hafði Raul Jimenez átt hörkuskot sem Ronwen Williams varði frábærlega.

Quinones átti hörkuskot undir lok hálfleiksins sem hafnaði í stönginni en Mexíkó gat hæglega verið tveimur til þremur mörkum yfir í hálfleik.

Þeir sættu sig þó við eins marks mun og Suður-Afríkumenn þurftu heldur betur að gyrða sig í brók. Þeir gerðu hins vegar hið þveröfuga.

Sithole sá rauða spjaldið á 49. mínútu er hann braut á Brian Gutierrez sem var sloppinn í gegn. Þetta var fyrsta rauða spjald mótsins og líklega ein slakasta frammistaða sem sést hefur í opnunarleik HM.

Jimenez tvöfaldaði forystu Mexíkó á 67. mínútu með laglegu skallamarki eftir fyrirgjöf frá hægri. Þetta var 46. landsliðsmark Jimenez fyrir Mexíkó.

Sex mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma fékk Suður-Afríka sitt annað rauða spjald þegar Themba Zwane sló til leikmanns Mexíkó og var sendur í sturtu eftir skoðun VAR.

Heimamenn í Mexíkó fengu klaufalegt rautt spjald undir lok leiksins þegar Cesar Montes, fyrirliði liðsins, braut af sér rétt fyrir utan teiginn og var réttilega rekinn af velli. Þriðja rauða spjaldið og í fyrsta sinn sem það gerist í opnunarleiknum.

Frekar vondur endir á annars frábærri frammistöðu Mexíkó, sem er komið með þrjú stig. Suður-Afríka er án stiga og verður án tveggja leikmanna í næsta leik. Mexíkó mætir Suður-Kóreu á meðan Suður-Afríka mætir Tékklandi.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner