England spilaði sinn síðasta æfingaleik fyrir HM í gær þegar liðið vann mjög öruggan sigur á Kosta Ríka 3-0.
Declan Rice er varafyrirliði liðsins en hann skoraði fyrsta mark leiksins.
Declan Rice er varafyrirliði liðsins en hann skoraði fyrsta mark leiksins.
„Við gerðum mjög vel að mínu mati. Stjórinn sagði okkur að gefa í fyrir leikinn, ákefðina með boltann og pressuna. Frammistaðan var frábær frá öllum, jafnvel þeim sem komu af bekknum. Þetta var framúrskarandi seinni hálfleikur. Mjög góður síðasti leikur áður en þetta byrjar allt saman," sagði Rice.
Rice er sannfærður um að liðið sé búið að aðlagast erfiðum aðstæðum í Bandaríkjunum.
„Við höfum aðlagast. Maður sér að hitinn er ekki vandamál núna. Fyrsta vikan, tíu dagar, hafa snúist um að aðlagast hitanum," sagði Rice.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




