Fotbolti.net
11.07.05 - 14:18
Magnús Már Einarsson

Andri Steinn til Víkings R. (Staðfest)

Andri Steinn í leik með Fram gegn ÍBV.

Andri Steinn í leik með Fram gegn ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Andri Steinn Birgisson sem hætti hjá Fram fyrir helgi skrifaði eftir hádegi í dag undir samning við Víking R. sem gildir út næsta sumar. Samningurinn verður þó endurskoðaður í lok þessa tímabils.
Andri Steinn sem leikur ýmist í fremstu víglínu eða á miðjunni lék alls sjö leiki með Fram í Landsbankadeildinni áður en hann hætti hjá liðinu. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-FM í gær greindi Andri frá því að Víkingur Ólafsvík hefði einnig viljað fá sig í sínar raðir en hann ákvað að fara til Víkings Reykjavíkur.

Andri mun án efa styrkja lið Víkings í 1.deildinni en sem stendur er það í öðru sæti deildarinnar með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.