11.07.05 - 17:12
Magnús Már Einarsson
Spector lánaður til Charlton (Staðfest)




Jonathan Spector varnarmaður Manchester United hefur verið lánaður til Charlton Athletic út næstu leiktíð. Spector sem er 18 ára Bandaríkjamaður lék sinn fyrsta leik með aðalliði Manchester United á síðustu leiktíð.
Hann átti að fara til Blackburn Rovers á láni í janúar en Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United ákvað að halda honum til að halda nægri breidd í hópnum.
Spector getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður og mun veita Hermanni Hreiðarssyni samkeppni um stöðu í vörninni hjá Charlton.
Spector getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður og mun veita Hermanni Hreiðarssyni samkeppni um stöðu í vörninni hjá Charlton.
